ALHLIÐA MÁLNINGAR- OG VIÐHALDSÞJÓNUSTA MANNVIRKJA AÐ INNAN SEM UTAN.

Vönduð vinna og þrifaleg umgengni. Verkskoðun á höfuðborgarsvæðinu og verðtilboð að kostnaðarlausu.

REGNBOGALITIR EHF.

Regnbogalitir var stofnað árið 2000 af Hrólfi Inga Skagfjörð löggiltum málarameistara sem hefur verið verktaki í byggingargeiranum síðan 1991. Á þeim tíma höfum við stækkað jafnt og þétt. Starfsmenn okkar eru menntaðir og sérhæfðir málarar eða með mikla reynslu í öllu sem tengist málun.Regnbogalitir búa yfir góðum tækjakosti og mikilli hæfni sem tryggir hraða en á sama tíma góða þjónustu til okkar viðskiptavina.

AFHVERJU AÐ RÁÐA MEISTARA?

Við erum menntaðir fagmenn sem leiðbeinum við val á efni og samsetningu lita, við höfum alla þá kunnáttu til að mæta þínum óskum og kröfum.

FAGKUNNÁTTA

Við gerum vel ígrundaðar kostnaðaráætlanir sem standast og einungis er notað efni sem höndlar íslenskar aðstæður.

MEIRI ENDING

Við sjáum til þess að góð sprungu og undirvinna sé í lagi og tryggir meiri endingu, við vinnum snyrtilega og fagmannlega.

GÓÐUR TÆKJAKOSTUR

Við höfum nýlega bætt við okkur körfubíl sem kemst upp í 28 metra hæð. Hægt er að leigja hann í hverskonar þjónustu, hvort sem það þarf að hreinsa rennur, þrífa glugga eða tengja rafmagn bæði lítil og stór verk. Einnig nýtum við bílinn í tilfallandi málningarverkefni hjá Regnbogalitum.

Hafa samband

VATNS & KROTVÖRN

Við höfum mikla reynslu í að vatns- og krotverja mannvirki. Það er nauðsynlegt að vatnsverja steiningu og sjónsteypu á c.a. 4 til 5 ára fresti samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.

Þegar búið er að vatnsverja og styrkja yfirborðið er kjörið að setja vörn gegn veggjakroti yfir þá fleti sem eru mögulega í hættu á að verða fyrir barðinu á þess háttar skemmdarverkum sem nánast vonlaust er að ná af án þess að krotvörn sé á fletinum.